22.03.2019
Núna í vikunni héldur bekkjartenglar í 7. bekk í annað sinn í vetur bekkjarkvöld fyrir nemendur 7. bekkjar og foreldra þeirra. Í fyrraskiptið lærðu krakkarnir reglur félagsvistarinnar og núna í seinna skiptið var spilað af miklum móð og borðaðar pizzur. Góð mæting foreldra og nemenda var á bæði kvöldin og almenn ánægja með uppátækið.
Bekkjartenglar annara bekkja eru hvattir til að hafa samverustund nú á vordögum. Ekkert er eins gott fyrir bekkjaranda og samskipti milli barna og foreldra eins og að hittast og eiga góða stund saman.
Nánar