Frístund

 Markmið 

  • Að skapa börnunum öruggt og uppeldislega jákvætt umhverfi utan hefðbundins skólatíma.
  • Að leitast við að dvölin í Frístund verði róleg og heimilisleg.

 Tímafjöldi og mætingar

Frístund er í boði fyrir nemendur á yngsta stigi, 1. - 4. bekk. Eingöngu er í boði að börn verði skráð í Frístund í lengri tíma, þ.e. annars vegar fram að áramótum og hins vegar eftir áramót.  Gefinn er kostur á að nemendur séu skráðir í Frístund ákveðna daga, fyrir eða eftir skóla. Tekið er tillit til foreldra í vaktavinnu. Sé um skráningu eftir skóla að ræða þá verður að skrá nemanda báðar klukkustundirnar frá kl.14:00-16:00. Ekki er gefinn kostur á að vera hluta tímans á milli kl. 14:00-16:00. Greitt er fyrir frístund mánaðarlega. Verð á klukkustund er 365 kr.

Frístund er lengdur skóladagur og fylgir alfarið skóladagatali varðandi skólafrí, starfsdaga o.fl. Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00 á skóladögum.

Tengiliður Frístundar er Kristjana Ditta Sigurðardóttir 
Breytingar á Frístund þurfa að berast í gegnum tölvupóst (kristjana.sigurdardottir@mulathing.is)

Símanúmer Frístundar er 837-9727.

Sótt er um Frístund með því að smella hér.