Mötuneytið

Nesti

Einungis er boðið upp ávexti/grænmeti í nestistímum á morgnana.  Ávaxtagjald á mánuði er kr. 1165. Innheimt verður með greiðsluseðli frá Múlaþingi. Þeir nemendur sem ekki vilja kaupa ávexti geta komið með sitt nesti að heiman. 

Mjólkuráskrift

Hægt er að kaupa mjólk með mat í hádeginu, áskriftin kostar 699 kr. á mánuði.

Hádegisverður

Reiknað er með að matseðillinn sé tilbúinn hér á síðunni 25. hvers mánaðar. Öllum nemendum skólans gefst kostur á að fá keyptan mat sem eldaður er í mötuneyti Egilsstaðaskóla. Verð á máltíð er 523 kr. 

Einungis er tekið við skráningu í hádegismat og ávaxta- og grænmetisáskrift rafrænt með því að smella hér.   

Uppsagnir eða breytingar á fæði þurfa að berast á fellaskoli@mulathing.is í síðasta lagi 20. hvers mánaðar til að breytingar taki gildi næsta mánuð á eftir.

 Stefna mötuneytis:

Matseðill er settir upp samkvæmt leiðbeiningum Embættis landslæknis á næringarþörf barna.

  • Framleitt er fjölbreytt fæða til að börn fái þau næringarefni sem þörf er á og eru þau hvött til að smakka allt það sem í boði er.
  • Salt og sykurmagni er haldið í lágmarki
  • Boðið er uppá grænmeti í öllum máltíðum annað hvort soðið eða ferskt.
  • Yfirleitt er ekki boðið upp á unnar kjötvörur (kjötfars, nagga og þess háttar )
  • Ekki er boðið upp á sætar kökur og kex og majones er aldrei notað.
  • Uppistaðan í köldum sósum er sýrður rjómi og súrmjólk. Í heitum sósum er ekki notað hveiti.

 

Starfsmenn mötuneytisins eru:

Síminn í mötuneytinu er 470 0619