Við hvetjum alla foreldra/forsjáraðila til að mæta á vinnustofu Farsældarsáttmálans sem haldin verður í skólanum okkar mánudaginn 2. nóvember kl. 19:30-21:30. Sigurjón Már Fox Gunnarsson frá Heimili og skóla leiðir okkur í gegnum vinnustofuna og styður við samtalið.
Á vinnustofunni fá foreldrar tækifæri til að ræða saman um það sem skiptir máli í uppeldi barnanna okkar, svo sem samskipti, vináttu, skjánotkun, félagslíf og sameiginleg viðmið.
Markmiðið er að efla samstöðu foreldra og skapa umhverfi þar sem öllum börnum líður vel. Frekari upplýsingar um Farsældarsáttmálann má finna hér:
https://heimiliogskoli.is/fraedslur-i-bodi/hvad-er-farsaeldarsattmalinn-og-til-hvers-er-hann/
Við vonumst til að sjá sem flesta!