Óhætt er að segja að spenna sé í loftinu í skólanum í dag. Eftir vel heppnaða sýningu á lokaverkefnum nemenda á unglingastigi í gær eru nemendur í 10.bekk að undirbúa sig fyrir útskrift úr grunnskóla síðar í dag. Stúlkurnar eru allar tilbúnar með kjólana sína og sumar hverjar settu rúllur í hárið í morgun.
Drengirnir eru frekar afslappaðri og ekki mikið að stressa sig á útlitinu. „Þetta er skrítin tilfinning,“ segir einn útskriftarnemandinn. Þegar hann er spurður um hvort hann muni sakna Fellaskóla segir hann „Njeee en kannski smá“ og brosir í kampinn.
Kennarar útskriftarnemanna eru í óðaönn að fínpússa útskriftarathöfnina, sem verður með hefðbundnu sniði.
Útskriftin er kl. 17:00 í dag.