Útinámsdagar og sumarfrí

Síðustu dagar skólans einkenndust af útinámi og tókum við forskot með íþróttadeginum.

Nemendur á yngsta stigi voru t.d. með hjóladag, sprelluðu á Vilhjálmsvelli og Tjarnargarði, fóru í leiki í Safnahúsinu, heimsóttu Hreindýragarðinn og buðu foreldrum og öðrum aðstandendum á Verndarsvæðið. Þessir nemendur ásamt 7. bekk fóru einnig á Borgarfjörð að hitta bekkjarfélaga þar. Þar var farið út í Höfn og lundarnir kipptu sér ekkert upp við öll þessi börn sem dáðust að þeim. Endað var svo í leik og mat við skólann á Borgarfirði.

Miðstigsnemendur skoðuðu næsta umhverfi í gönguferðum, fóru í Vök, Hreindýragarðinn og enduðu í Felladraumnum, þrautaleik sem kennarar útbjuggu.

Unglingastigsnemendur sýndu afrakstur valverkefnaviku, fengu tveggja daga kennslu frá Náttúruskólanum og héldu bekkjarleika með allskonar þrautum og leikjum. Má þar nefna að ein þrautin var að standa á öðrum fæti og voru tveir nemendur sem stóðu þannig í rúmlega 30 mínútur! 

Ekkjufellsgangan var á sínum stað og þrátt fyrir blauta jörð fengum við gott gönguveður og frábært útsýni. Nemendur eiga hrós skilið fyrir gott hugarfar í göngunni, margir gáfu sér tíma til að njóta dagsins og náttúrunnar. 

Skólanum var svo slitið á sal föstudaginn 5. júní og seinnipartinn voru 7 nemendur útskrifaðir í huggulegri samverustund. Við óskum þessum nemendum góðs gengis í þeirra næstu ævintýrum.

Gleðilegt sumar!