Undirbúningur fyrir árshátíð

Undirbúningur fyrir árshátíð Fellaskóla er nú í fullum gangi og hefur mikil vinna verið síðustu daga. Nemendur hafa verið að æfa leikrit og söng af miklum krafti ásamt því að skreyta skólann. Mikil stemning er í nemendum og greinilegt að allir eru spenntir fyrir árshátíðinni. Það er ljóst að árshátíðin verður glæsileg í ár.

Árshátíðin verður 26.mars kl. 17:00-19:00

Aðstandendur eru hvattir til að gefa sér tíma eftir sýningu og þiggja léttar veitingar. kaffi, kakó og kleinur.