Föstudaginn 4. september verður Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn á Íslandi til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn með krabbamein í hverjum mánuði. Með Treyjudeginum getum við sýnt stuðning og samstöðu á einfaldan og sýnilegan hátt.
Fellaskóli ætlar svo sannarlega að taka þátt. Nemendur og starfsfólk eru hvött til að mæta í sinni uppáhalds íþróttatreyju í skólann og sýna þannig samstöðu með börnum sem glíma við krabbamein. Það skiptir engu máli hvaða liði er haldið með, öll lið eru í sama liðinu 4. september.