Stuðningsfulltrúi óskast

Stuðningsfulltrúi óskast til starfa við Fellaskóla frá og með 13. september 2021. Um 50% - 80% starfshlutfall er að ræða. Við erum að leita að metnaðarfullum og kröftugum einstaklingi sem er tilbúinn til að vinna með börnum og unglingum á uppbyggjandi hátt.

Helstu verkefni og ábyrgð; 

Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi.

Aðstoðar nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámsskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara, deildarstjóra stoðþjónustu og skólastjóra.

Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum í skólastarfinu.
Fylgir einum eða fleiri nemendum eftir á ferðum þeirra um skólann, í frímínútum og vettvangsferðum

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Birna Einarsdóttir skólastjóri í síma 4700640. Hægt er að senda umsókn á anna.einarsdottir@mulathing.is

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.