Skráning í Frístund og ávaxtanesti

Frístund er í boði fyrir nemendur á yngsta stigi, 1. - 4. bekk. Eingöngu er í boði að börn verði skráð í Frístund í lengri tíma, þ.e. annars vegar fram að áramótum og hins vegar eftir áramót.  Gefinn er kostur á að nemendur séu skráðir í Frístund ákveðna daga, fyrir eða eftir skóla. Tekið er tillit til foreldra í vaktavinnu. Sé um skráningu eftir skóla að ræða þá verður að skrá nemanda báðar klukkustundirnar frá kl.14:00-16:00. Ekki er gefinn kostur á að vera hluta tímans á milli kl. 14:00-16:00. Greitt er fyrir frístund mánaðarlega.

Sótt er um frístund með því að fara í linkinn -> Skólinn -> Frístund eða smella hér

Öllum nemendum skólans gefst kostur á að borða hádegisverð í skólanum endurgjaldslaust.
Allur matur er eldaður í mötuneyti Egilsstaðaskóla.

Boðið er upp á ávexti/grænmeti í nestistímum á morgnana.  Ávaxtagjald á mánuði er kr. 1236. Innheimt verður með greiðsluseðli frá Múlaþingi tvisvar yfir skólaárið. Í byrjun haustannar og byrjun vorannar. Þeir nemendur sem ekki vilja kaupa ávexti geta komið með sitt nesti að heiman. 

Skráning í ávaxtanesti: -> Skólinn -> Mötuneytið eða smella hér