Nemendaverkefni á uppbrotsdegi

Á uppbrotsdegi í skólanum unnu nemendur, á öllum stigum, að sameiginlegu verkefni í anda listamannsins Pablo Picasso. 

Skipta má list Picassos í nokkur tímabil og eitt af þeim tímabilum var Kúbismi. Helstu einkenni Kúbisma er t.d. Form brotin upp í smáar hornóttar einingar, geometrísk form og álímd efni (klippimynd)

Mikil spenna og eftirvænting var í nemendahópnum að sjá endanleg lok verkefnisins. Eins og sjá má tókst verkefnið mjög vel og útkoman var snilldar listaverk í anda kúbisma