Múlaþingsleikar

Múlaþingsleikarnir fóru fram í dásamlegu veðri í dag. Við tókum á móti gestunum okkar, sem voru nemendur í fjórða bekk í grunnskólum Múlaþings, á verndarsvæðinu. Þar var boðið uppá tálg, lummugerð og bakstur, vísindastöð, hreyfistöð og listasmiðju. Dagurinn endaði á grilluðum pylsum og frjálsum leik á fótboltavelli. Takk fjórði bekkur í Múlaþingi fyrir góðan dag.

 Sjá myndir hér: Múlaþingsleikar vor 2026