Kökuboð

Nemendur í 5. bekk héldu skemmtilega kaffisamsætu þar sem þeir bökuðu alls konar góðgæti og buðu foreldrum sínum í kaffi. Nemendur stóðu sig frábærlega í eldhúsinu og lögðu mikinn metnað í baksturinn. Á borðum mátti sjá alls konar kræsingar.

Foreldrar mættu glaðir og nutu þess að eiga notalega stund með börnum sínum í skólanum. Stemningin var skemmtileg og greinilegt að bæði nemendur og gestir voru ánægð með daginn.