Guli dagurinn á morgun 10.september

Guli dagurinn er haldinn til að vekja athygli á mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna og minna okkur á að sýna hvert öðru kærleika, aðgát og umhyggju.

Nemendur og starfsfólk ætla að taka þátt, mæta í gulu eða með eitthvað gult og sýna samhug og samstöðu.

Saman gerum við daginn bjartan og fallegan. 💛