Geðlestin í Fellaskóla

Geðlestin, sem er samstarfsverkefni Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða krossins 1717, kom í heimsókn til okkar í dag en Fellaskóli er skóli nr. 100 sem þau heimsækja í hringferð sinni um landið.

Geðlestin er geðfræðsla fyrir nemendur í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla sem byggir á þeirri staðreynd að við búum öll við geð rétt eins og við erum með hjarta. Á lífsleiðinni er mjög líklegt að við lendum í mótvind og þurfum jafnvel að leita okkur aðstoðar. Öflug geðrækt frá unga aldri út lífið er besta ráðið til að takast á við þær áskoranir sem lífið færir okkur. 

Eftir að hafa fengið fræðslu og frásögn frá Geðlestinni steig Emmsje Gauti á svið - og nú er miður að þurfa að velja bara eina mynd því stemmingin var rosaleg eins og sjá má!

Við hvetjum foreldra barna á unglingastigi til að ræða við þau og fá að heyra af heimsókninni.