Foreldrafræðsla Siggu Daggar og SAFT

Á miðvikudaginn fá nemendur fræðslu frá Siggu Dögg í skólunum en meðal umræðuefna eru eftirfarandi spurningar: Hver er ég? Hver vil ég vera? Hverjar eru fyrirmyndirnar mínar og afhverju eru þær fyrirmyndirnar mínar? Á ég fyrirmyndir fyrir ástina og sambönd? Hvernig tala ég um ástina? Hvaða skilaboð hef ég fengið um sambönd og frá hverjum? Eru mín mörk virt? Virði ég mörk annarra? Hvað er samþykki? Í foreldrafræðslunni verður farið yfir sama efni út frá umræðunum sem Sigga Dögg átti með unglingunum í skólanum. Rætt verður um áskoranirnar við að vera unglingur í dag á tímum snjalltækni og samfélagsmiðla. Fræðslan var prufukeyrð í vor og vakti miklu lukku hjá foreldrum sem hana sóttu. Þótt fræðslan sé miðuð að foreldrum unglinga þá eru allir foreldrar velkomnir.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

SAFT og Sigga Dögg.