Stóra upplestrarkeppninn

Þessar flottu stúlkur þær Ragna Sigurlaug, Tekla Tíbrá og Bjarndís stóðu sig með miklum sóma á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin var í Egilsstaðakirkju nú á dögunum við hátíðlega áthöfn. Þær fluttu texta úr bókinni Fjársjóðsleit í Granda eftir Ólaf Pál Jónsson, ljóð sem fjallaði um fugla og loks ljóð að eigin vali. Stelpurnar fengu viðurkenningarskjal og bókagjöf fyrir þátttöku í keppninni.

Við óskum þeim innilega til hamingju með þeirra framlag í keppninni fyrir hönd Fellaskóla.