Dagur gegn einelti 8.nóvember.

Sóley, Hilma og Eva Guðrún
Sóley, Hilma og Eva Guðrún

Kærleikur og samstaða í Fellaskóla

Dagur gegn einelti er á sunnudaginn 8. nóvember. Nemendur og starfsfólk komu saman í dag og sungu Kærleikslagið til að sýna samstöðu og minna á mikilvægi vináttu, virðingar og kærleika í skólasamfélaginu. Mikilvæg stund sem minnir okkur á að við berum öll ábyrgð á að öllum líði vel og enginn sé skilinn útundan.

Kærleikur og kurteisi kosta ekki neitt,
Það bætir ekkert að rífast og slást.
Pössum hvað við segjum því orð þau geta meitt
og dreifum gleði og ást.