Breyting á dagsetningu göngudags

Veðurspáin fyrir fimmtudag er ekki hentug fyrir stóra göngudaginn, þó að hún sé fín fyrir leik og nám í/við skólann.

Vegna þessa höfum við flýtt göngudeginum um einn dag og hann er því miðvikudaginn 26. ágúst.

Nemendur koma með nesti að heiman, klæddir eftir veðri og fyrir lengri göngur er gott að hafa stafi. Sjá nánar í tölvupósti frá stjórnanda.