Aðalfundur Foreldrafélags Fellaskóla

Aðalfundur foreldrafélags Fellaskóla
Dagsetnig/kl: 24. apríl 2018 kl.17:30
Staðsetning: Fellaskóli

Fundinn sátu: 12 manns

Aðalfundur þessi er uppgjör fyrir tvö ár, 2016 og 2017.

Dagskrá:

1)      Anna Hólm formaður setti fundin.

2)      Fundur samþykkti Sigrúnu Jónu Hauksdóttur sem fundarstjóra og Kristjönu Dittu sem fundarritara.

3)      Formaður las upp skýrslu stjórnar og ræddi lítllega um atburði árana

4)      Gjaldkeri kynnti ársreikninga fyrir árin 2016 og 2017. Reikningar útskýrðir og ræddir .

Fundur samþykkti ársreikninga án athugasemda.

5)      Stjórnarkosning
Kristjana og Harpa Hlín vilja hætta í stjórn, dóttir Kristjönu útskrifaðist vorið 2017 og dóttir Hörpu útskrifast núna í vor 2018. Því æskilegt að nýjir foreldrar komi inn. Anna Hólm óskar einnig eftir að hætta. Lögum samkvæmt geta einungis þrír stjórnarmeðlimir hætt á sama tíma, svo Tinna og Freyr halda áfram stjórnarstarfi.
Vel gekk að manna nýja stjórn en inn komu: Þórey Birna Jónsdóttir, Margrét Dögg Guðgeirsdóttir Hjarðar og Hrafnhildur Unnur Einarsdóttir.

Hin nýja stjórn skiptir með sér hlutverkum á fyrsta fundi sínum.

Skoðunarmenn ársreikninga árin 2016 og 2017 voru Margrét Dögg og Sigrún Hauks. Sigrún bauð sig aftur fram í þetta hlutverk og í stað Margrétar kom Árni Friðriksson.

6)      Önnur mál

Margrét dögg kom með tillögu um að virkja aðra foreldra til að starfa með stjórn. Til dæmis með morgunverðarfundin, fá foreldra barna í 4.bekk til að koma inn og sjá um veitingarnar. Ekki bara stjórnarmenn sveittir yfir þjónustu (stjórn myndi enn borga fyrir veitingarnar).Fundur tók vel í þessa tillögu hvernig sem hún yrði útfærð. Ein ábending kom þó í samabandi við þetta en núna er nýr skólastjóri að taka við störfum og e.t.v. breytir hún tilhögun skólaatburða. En Ný stjórn kemur þá til með að haga seglum eftir vindi hvað það varðar.

Fundarslit: 18:10