Föstudaginn 22. janúar hefst þorri, en það er gamalt mánaðarheiti en samkvæmt forníslensku tímatali var þorri fjórði mánuður vetrar. Þorri var líka talinn erfiðasti vetrarmánuðurinn og því er stundum talað um að þreyja þorrann en það þýðir eiginlega að harka hann af sér eða að komast í gegnum hann, þola tímabundna erfiðleika. Fyrsti dagur þorra nefnist bóndadagur og einmitt þann dag er miður vetur.
Á bóndadaginn verður hið árlega þorrablót nemenda í Fellaskóla. Að öllu jöfnu koma allir saman, borða og dansa, En í ár halda stigin blót út af fyrir sig
Yngsta stig kl. 11.15- 11.45
Miðstig kl. 11.50 – 12:20
Unglingastig kl. 12:30 – 13:15
Hvert stig heldur svo sína dagskrá og stjórnar söng.